Er þá ekki tilvalið að versla íslenskt
23.7.2011 | 10:10
Dexoris er íslenskur tölvuleikjaframleiðandi sem framleiðir leiki fyrir iPhone. Fyrirtækið hefur framleitt tvo leiki, Peter und Vlad og Audio Puzzle fyrir iPhone.
Audio Puzzle var tilnefndur sem besti tónlistarleikur ársins 2009 fyrir iPhone af vefsíðunni 148Apps. Tilkynnt var um sigurvegara á Macworld sýningunni 11. febrúar 2010 og lenti leikurinn í öðru sæti.
Peter und Vlad er æsispennandi ævintýraleikur fyrir alla fjölskylduna sem fjallar um Sedov-bræðurna, smalann Pétur og uppfinningamanninn Valda, og baráttu þeirra við stjórnlausa uppfinningu. Leikurinn fékk góðar viðtökur en fleiri en 40 þúsund notendur hafa sótt leikinn frá upphafi og í október valdi Apple leikinn inn á listann Whats Hot í netverslun sinni.
Tónlistarvefsvæði
Í apríl 2010 setti Dexoris á laggirnar tónlistarsíðuna AudioPuzzle.com þar sem hægt er að finna upplýsingar um hljómsveitir og tónlistarmenn. Þar má meðal annars finna æviágrip, útgáfusögu, vinsælustu lög, spila lög frá YouTube, búa til spilunarlista (e. playlist), fylgjast með nýjasta tvíti frá twitter og fundið áþekka tónlistarmenn og tónlist. Einnig er boðið upp á að deila upplýsingunum á helstu félagsnetum (e. social networks), svo sem eins og Facebook, Twitter, MySpace og Digg.
Umfjöllun um leiki Dexoris á Maclantic
iTunes í App Store á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hressandi hljómsveit á hressandi vef
21.3.2011 | 19:50
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
AudioPuzzle.com
30.3.2010 | 12:46
Gáfum út leikinn Audio Puzzle fyrir síðustu áramót. Leikurinn slóg í gegn og var valinn næst vinsælasti tónlistarleikur 2009 af einni virtustu síðu í bransanum.
Til að fylgja leiknum á eftir og búa í haginn fyrir fleiri leikjum af þessu tagi ákváðum við að búa til tónlistarvefsvæð. Tónlistarvefsvæðið heitir AudioPuzzle.com og er upplýsingasvæði og lendingarsíða fyrir þá tengla sem leikmenn deila á facebook og twitter.
Vefurinn er búinn að þróast ágætlega, en við eigum eftir að setja endanlegt útlit á hann, það má því líta á þetta sem frumtýpu.
Læt nokkra tengla fylgja með á uppáhalds hljómsveitirnar mínar:Geri mér grein fyrir að smekkur minn er langt því frá að vera allra, en síðan bíður einnig upp á tónlist og upplýsingar helstu tónlistamanna samtímans, svo sem eins og:
- Madonna: http://www.audiopuzzle.com/discovery/madonna/
- Britney Spears: http://www.audiopuzzle.com/discovery/britney-spears/
- Christina Aguilera: http://www.audiopuzzle.com/discovery/christina-aguilera/
- Guns n' Roses: http://www.audiopuzzle.com/discovery/guns-n-roses/
- Metallica: http://www.audiopuzzle.com/discovery/metallica/
- Dexoris
Bloggar | Breytt 21.3.2011 kl. 19:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Peter und Vlad - Nokkur skjáskot
24.8.2009 | 11:39
Hér má sjá nokkur skjáskot úr leiknum Pétri og Valda. Pétur er bóndi og Valdi er vísindamaður. Valdi vill hjálpa Pétri og bjó því til vél sem stýrir veðrinu. Einn galli er á gjöf Njarðar, vélin nærist á ull. Því fer hún út um víðan völl og sýgur kindurnar upp. Pétur þarf að bjarga sem flestum kindum inn í fjárhús áður en vélin sýgur þær upp.
Valmyndin
Loading skjárinn sýnir leiðbeiningar
Zen mode er fyrir þá sem vilja smala í rólegheitum án þess að þurfa að hafa áhyggjur af veðra vélinni
Pétur var að fá sér orkusvepp og hleypur um á tvöföldum hraða
Enn og aftur búinn að fá sér orkusvepp
Getur verð gott að taka hlé í miðjum klíðum
Veðravélin að draga kindur til sín
Náði ellefu kindum inn í einu og fæ bónus fyrir það
Hér er vélin orðin ansi hlaðin
Vélin er búin að breyta árstíðinni í vetur
"Panic" hnappurinn notaður til að bjarga kindunum inn áður en vélin náði til þeirra
Útlitið orðið ansi svart
Endalokin nálgast
Tölfræði úr leiknum
Vefsíða Péturs og Valda: http://peter-und-vlad.com
Vefsíða Dexoris: http://dexoris.com
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sprotafyrirtækið Dexoris
2.8.2009 | 13:06
Við stofnuðum nokkrir félagarnir fyrirtæki í vor. Þetta fyrirtæki heitir Dexoris [http://dexoris.com/] og er ætlað að skrifa tölvuleiki og hugbúnað fyrir iPhone og iPod touch.
Nú er fyrsti leikurinn að verða tilbúinn og verður hann sendur í prófanir næsta föstudag.
Þetta er þjóðlegur leikur, en hann fjallar um að smala kindum. Leikurinn heitir Peter und Vlad [http://peter-und-vlad.com/].
Set inn myndir og nánari lýsingu þegar leikurinn kemur út.
Bloggar | Breytt 24.8.2009 kl. 11:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)